Man Utd ætlar að reka Ten Hag - Hver tekur við? - Tuchel hefur áhuga á starfinu
banner
   fim 24. júní 2021 06:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Eto'o væri til að sjá Ramos semja við Barcelona
Sergio Ramos.
Sergio Ramos.
Mynd: Getty Images
Samuel Eto'o væri til að sjá Sergio Ramos, fyrrum fyrirliði Real Madrid, hjá Barcelona.

Eto'o er fyrrum leikmaður bæði Real Madrid og Barca, en hann er þekktur fyrir tíma sinn í Katalóníu þar sem hann var hluti af einu sterkasta fótboltaliði sögunnar undir stjórn Pep Guardiola.

Það myndi vekja hörð viðbrögð hjá stuðningsmönnum Real ef Ramos færi til helstu erkifjendanna í Barcelona. Sextán ára dvöl Ramos hjá Real var að enda og hann er núna í leit að nýju félagi. Eto'o væri til í að sjá hann hjá Barcelona.

„Ef ég réði einhverju hjá Barcelona þá myndi ég ná í hann," segir Eto'o.

Það virðist allt benda til þess að Ramos muni ganga í raðir Paris Saint-Germain. Það eru engar líkur á því að hann væri til Barcelona, sem væri áhugaverð saga samt sem áður.

Ramos, sem er 35 ára gamall, ætlar að prófa eitthvað nýtt áður en ferillinn klárast.
Athugasemdir
banner
banner
banner