Fotbolti.net
24.06.26 - 10:35
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Ronaldinho kynntur hjá Ravenna: Við munum gera eitthvað sérstakt!

Ronaldinho kynntur hjá Ravenna: Við munum gera eitthvað sérstakt!
Canon

Mynd: Ravenna

Ronaldinho hefur verið tilkynntur sem nýr liðsmaður ítalska C-deildar liðsins Ravenna og er sagt að hann gæti verið að taka skóna af hillunni eftir að hafa verið hættur í fótbolta í níu ár.

Sagan er nokkuð ótrúleg en Ronaldinho hefur sjálfur tjáð sig um hana. Ronaldinho er risanafn í fótboltaheiminum og lénið á heimasíðu Ravenna nú R10.Ravennaafc.it..
„Ég er glaður að fólk sé að tala um þetta," segir hinn 46 ára gamli Ronaldinho.

„Fólk er alltaf að spyrja mig út í þetta. Vinir mínir og öll fjölskyldan hefur spurt mig hvort það sé satt að ég sé að fara spila aftur."

„Sannleikurinn er sá að þetta er frábært fyrir okkur, við munum fara þangað til að gera frábæra hluti. Við munum gera eitthvað sérstakt."

„Ég get ekki beðið eftir því að koma þangað, fá að kynnast staðnum; öll fjölskyldan og ég erum hæstánægð. Ég get ekki beðið."


Eigandinn Ignazio Cipriani bætti svo við: „Það er eitthvað stórkostlegt að gerast og allir í heiminum munu tala um þetta. Ég held það verði mikil veisla þegar kemur að því að hann mun spila."


Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.