Fotbolti.net
24.07.17 - 15:10
Magnús Már Einarsson

Vedran Turkalj í KA (Staðfest)

Vedran Turkalj og Srdjan Tufegdzic þjálfari KA.

Vedran Turkalj og Srdjan Tufegdzic þjálfari KA.

Canon

Mynd: KA

KA hefur fengið króatíska miðvörðinn Vedran Turkalj í sínar raðir en hann hefur gert samning við félagið út tímabilið.
Turkalj er 29 ára gamall en hann var á reynslu hjá KA í síðustu viku.

Turkalj er 193 sentímetrar á hæð en hann kemur til liðs við KA frá NK Aluminij sem leikur í Slóvensku úrvalsdeildinni. Þar hefur hann leikið undanfarin þrjú tímabil. Turkalj lék einnig með yngri landsliðum Króatíu á árum áður, alls 12 leiki.

KA fékk fjögur mörk á sig á heimavelli gegn Breiðabliki í gær og þrjú gegn ÍBV um þarsíðustu helgi. Turkalj á að hjálpa til við að skrúfa fyrir lekann í vörninni.

„Turkalj mun koma til með að þétta raðir KA fyrir síðari umferðina í Pepsi-deildinni en eins og alkunnugt er meiddist Guðmann Þórisson illa fyrr á tímabilinu og er óvíst hvort hann geti leikið meira með KA í sumar,\" segir á heimasíðu KA.

KA spilar ekki næst fyrr en um Verslunarmannahelgina, eftir 12 daga, en leik liðsins gegn FH var frestað þar til þá.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.