24.07.19 - 07:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Depoitre aftur til Gent (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Belgíski framherji Huddersfield, Laurent Depoitre, hefur yfirgefið félagið og er genginn til liðs við Gent í Belgíu. Depoitre fer á frjálsri sölu frá Huddersfield.
Depoitre hefur áður leikið með Gent en hann lék 58 deildarleiki og skoraði 24 mörk í þeim þegar hann var hjá félaginu á árunum 2014-2016. Frá Gent var hann seldur til Porto sem síðar seldi hann til Huddersfield.
Hjá Huddersfield skoraði Depoitre 6 mörk í 56 úrvalsdeildarleikjum.

Depoitre á að baki einn landsleik fyrir Belgíu og hann skoraði í þeim leik. Hann skoraði fjórða markið í 4-1 sigri á Andorra í undankeppni EM2016.