Fotbolti.net
24.07.19 - 17:40
Elvar Geir Magnússon

KA fær annan Spánverja (Staðfest)

David Cuerva og Óli Stefán Flóventsson.

David Cuerva og Óli Stefán Flóventsson.

Canon

Mynd: KA

KA hefur fengið til sín annan spænskan leikmann en um er að ræða 28 ára sóknarmiðjumann, David Cuerva.

KA er sem stendur í fallsæti í Pepsi Max-deildinni en liðið tekur á móti FH á sunnudaginn.

KA gerði 1-1 jafntefli gegn ÍA í síðustu umferð en í þeim leik lék spænski miðjumaðurinn Iosu Villar sinn fyrsta leik fyrir félagið. Hann var fenginn til að fylla skarð Daníels Hafsteinssonar sem fór í Helsingborg.
Af heimasíðu KA:

Knattspyrnudeild KA fékk í dag annan öflugan spænskan liðsstyrk er David Cuerva Barroso skrifaði undir samning út árið við félagið. David er 28 ára miðjumaður sem mun veita sóknarlínu okkar aukinn kraft.

Iosu Villar gekk til liðs við KA á dögunum og lék sinn fyrsta leik fyrir liðið í 1-1 jafnteflinu gegn ÍA um nýliðna helgi og kom strax sterkur inn. Það verður gaman að sjá hvernig tilkoma þessara tveggja öflugu spænsku miðjumanna mun styrkja okkar lið fyrir síðari hluta sumarsins og ætlumst við til mikils af þeim tveimur.

Næsti leikur KA er á sunnudaginn er FH kemur í heimsókn og þurfum við áfram á ykkar magnaða stuðning að halda kæru KA-menn, sjáumst á Greifavellinum og áfram KA!
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.