24.07.19 - 12:11
Magnús Már Einarsson
Theodór Elmar í Akhisarspor (Staðfest)

Theodór Elmar Bjarnason.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Theodór Elmar Bjarnason.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Theodór Elmar Bjarnason hefur gengið til liðs við Akhisarspor í en hann gerði tveggja ára samning við félagið í dag. Akhisarspor féll úr tyrknesku úrvalsdeildinni í vor.
Theodór Elmar kemur til Akhisarspor frá Gazişehir Gaziantep en hann fór upp í úrvalsdeild með liðinu síðastliðið vor.
Mehmet Altıparmak tók við liði Akhisarspor í sumar en hann þjálfaði Theodór Elmar hjá Gaziantep á síðasta tímabili.
Hinn 32 ára gamli Elmar fór frá Elazigspor seint á síðasta ári eftir að hafa ekki fengið gredd laun hjá félaginu og þá gekk hann í raðir Gaziantep. Hann er nú kominn í sitt þriðja lið í Tyrklandi.
Elmar hefur skorað eitt mark í 42 landsleikjum fyrir Íslands hönd en hann á langan feril í baki atvinnumennsku erlendis. Áður en hann kom til Tyrklands lék Elmar með Celtic í Skotlandi, Lyn í Noregi, Gautaborg í Svíþjóð og AGF í Danmörku.

Akhisarspor'umuz Elmar Bjarnason ile 2 yıllık sözleşme imzaladı.Takımıza ve futbolcumuza hayırlısı olsun pic.twitter.com/T72XyNBAj7
— Akhisarspor (@Akhisarspor) July 24, 2019