Fotbolti.net
24.07.19 - 08:33
Magnús Már Einarsson

Trezeguet til Aston Villa (Staðfest)

Trezeguet er mættur til Aston Villa.

Trezeguet er mættur til Aston Villa.

Canon

Mynd: Aston Villa

Aston Villa hefur keypt framherjann Mahmoud Hassan frá Kassimpasa í Tyrklandi á átta milljónir punda.

Hassan er yfirleitt kallaður Trezeguet en ástæðan er sú að leikstíll hans þótti minna á franska framherjann David Trezeguet á yngri árum.

Hinn 24 ára gamli Trezeguet er frá Egyptalandi en hann mun nú styrkja nýliða Aston Villa í baráttunni í ensku úrvalsdeildinni.

<i>„Við erum mjög spenntir að vinna með Trez. Ég hef horft nokkrum sinnum á hann,"</I> sagði Dean Smith stjóri Aston Villa.
„Hann er kantmaður sem við höfum verið að leita að. Hann er beinskeyttur og getur skapað vandræði á síðasta þriðjungi fyrir andstæðingana og skorað mörk."
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.