Paul McShane, landsliðsmaður Írlands, hefur skrifað undir samning við sitt uppeldisfélag, Manchester United.
Þetta staðfesti enska félagið í gær en McShane mun bæði spila með og þjálfa U23 lið félagsins.
McShane er þekktastur fyrir tíma sinn með Hull City frá 2009 til 2015 en lék síðast með Rochdale í neðri deildunum.
McShane er 35 ára gamall en hann náði aldrei að leika aðalliðsleik með Man Utd og yfirgaf félagið árið 2006.
Ekki er búist við að McShane verði skráður í aðalliðshóp félagsins fyrir tímabilið sem hefst í næsta mánuði.
Athugasemdir