Ítalska félagið Juventus hafnaði 86 milljón punda tilboði Liverpool í Federico Chiesa á dögunum en þetta kemur fram í La Repubblica.
Chiesa var ein skærasta stjarna ítalska landsliðsins á Evrópumótinu í sumar er liðið vann mótið.
Hann fór í gegnum unglingaliðin hjá Fiorentina áður en hann gekk til liðs við Juventus fyrir síðustu leiktíð.
Samkvæmt La Repubblica lagði Liverpool fram 86 milljón punda tilboð í Chiesa á dögunum en Juventus hafnaði því um leið.
Liverpool er að leitast eftir því að styrkja sig í sóknarlínunni til að veita þeim Mohamed Salah, Roberto Firmino og Sadio Mane samkeppni.
Athugasemdir