Fotbolti.net
24.08.16 - 16:20
Magnús Már Einarsson

DeAndre Yedlin til Newcastle (Staðfest)

DeAndre Yedlin til Newcastle (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Newcastle hefur keypt bandaríska hægri bakvörðinn DeAndre Yedlin frá Tottenham.

Kaupverðið hefur ekki verið gefið upp en Yedlin skrifaði undir fimm ára samning við Newcastle.

Yedlin á að fylla skarð Daryl Janmaat sem fór frá Newcastle til Watford fyrr í dag.

Yedlin kom til Tottenham í fyrra en náði ekki að festa sig í sessi í liðinu.
Á síðasta tímabili var hinn 23 ára gamli Yedlin í láni hjá Sunderland en hann er nú mættur aftur til Norður-Englands þar sem hann mun spila með Newcastle.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.