Fotbolti.net
24.08.17 - 11:23
Elvar Geir Magnússon

Svissneskur varnarmaður í Huddersfield (Staðfest)

Florent Hadergjonaj.

Florent Hadergjonaj.

Canon

Mynd: Getty Images

Nýliðar Huddersfield í ensku úrvalsdeildinni hafa farið vel af stað á tímabilinu og eru búnir að vinna báða deildarleiki sína.
Félagið hefur fengið til sín svissneskan landsliðsvarnarmann, Florent Hadergjonaj, á lánssamningi frá Ingolstadt í Þýskalandi út tímabilið.

Þessi 23 ára hægri bakvörð spilaði 25 leiki í þýsku Bundesligunni á síðasta tímabili.

Hann gæti spilað sinn fyrsta leik á laugardag gegn Southampton.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.