24.08.17 - 13:15
Elvar Geir Magnússon
Zlatan búinn að gera eins árs samning við Man Utd (Staðfest)

Zlatan verður áfram.

Mynd: Getty Images

Zlatan verður áfram.

Mynd: Getty Images
Zlatan Ibrahimovic hefur gert nýjan eins árs samning við Manchester United. Þetta hefur enska félagið staðfest og gefur út að sænski sóknarmaðurinn muni verða í treyju númer 10.
Zlatan er 35 ára og lék 46 leiki og skoraði 28 mörk fyrir United á síðasta tímabili áður en hann meiddist illa á hné og missti af lokakafla tímabilsins.
Zlatan hefur afrekað það að verða meistari í fjórum mismunandi löndum síðan atvinnumannaferill hans hófst með Malmö 1999.
„Zlatan er á leið að bata og við erum mjög ánægðir með að hafa metnað hans og reynslu aftur með okkur. Eftir framlag hans síðasta tímabil átti hann skilið að fá okkar traust og við sýnum þolinmæði á meðan við bíðum eftir að hann snúi aftur. Ég er ekki í vafa um að hann verði mikilvægur seinni hluta tímabilsins,\" segir Jose Mourinho, stjóri United.
Sjálfur segir Zlatan í samtali við heimasíðu United:
„Ég er kominn aftur til að klára það sem ég byrjaði. Það var alltaf fyrsti kostur hjá mér og félaginu að ég yrði áfram. Ég get ekki beðið eftir því að stíga aftur út á Old Trafford en er líka meðvitaður um að ég þarf að taka minn tíma til að vera viss um að vera tilbúinn. Ég hef mikið lagt á mig og mun halda því áfram svo ég verði í eins góðu standi og möguleiki er á þegar ég sný aftur út á völlinn,\" segir Zlatan.
Það eru enn einhverjir mánuðir í að stuðningsmenn United fá að sjá Zlatan aftur inni á vellinum. Félagið keypti Romelu Lukaku í sumar og tók hann treyju númer 9 svo Zlatan fer í 10, gamla númer Wayne Rooney.

#Zlat10 pic.twitter.com/jnjJHnLJy4
— Manchester United (@ManUtd) August 24, 2017
I UNITED it @ManUtd pic.twitter.com/2rgvuvoT0m
— Zlatan Ibrahimović (@Ibra_official) August 24, 2017