Búið er að staðfesta félagaskipti Adrien Silva frá Leicester til Mónakó á lánssamningi út tímabilið.
Silva er portúgalskur miðjumaður sem kostaði Leicester 22 milljónir punda fyrir tveimur árum. Hann var lánaður til Mónakó síðasta janúar fyrir Youri Tielemans sem var ekki lengi að stela sætinu í hópnum.
Silva á 26 leiki að baki fyrir A-landslið Portúgal auk 46 leikja fyrir yngri liðin. Hann ólst upp hjá Sporting og var atvinnumaður þar í áratug áður en hann skipti til Leicester.
Mónakó er að styrkja hópinn eftir slakt síðasta tímabil og hörmulega byrjun á nýju tímabili. Liðið er stigalaust eftir 3-0 töp í fyrstu tveimur umferðunum.
🔴⚪️ L’AS Monaco est heureux d’annoncer l’arrivée d’Adrien Silva en provenance de Leicester. Le milieu de terrain portugais 🇵🇹 est prêté jusqu’à la fin de la saison. Bon retour parmi nous @adrien_silva23 !
— AS Monaco 🇲🇨 (@AS_Monaco) August 23, 2019
👉 https://t.co/1LlAtikb3R pic.twitter.com/U7WjbHAZM5
Athugasemdir