Haukar sigruðu í gærkvöldi FH í nágrannaslag í Inkasso-deild kvenna.
Lestu um leikinn: FH 3 - 5 Haukar.
Vienna Behnke skoraði þrjú fyrstu mörk leiksins og komu þau á rúmlega sex mínútna kafla.
Fyrsta markið kom á þriðju mínútu leiksins. Behnke var fyrst að átta sig við vítateig FH og kom boltanum í netið. Annað markið kom rúmum tveimur mínútum seinna þegar Behnke skoraði glæsilegt mark beint úr aukaspyrnu og þriðja markið kom snemma á 10. mínútu þegar Behnke lék á varnarmann FH og smellhitti svo boltann uppi í fjærhornið.
Behnke var í viðtali við Fótbolti.net, eftir leikinn í gær, spurð útí tilfinninguna að skora þrjú mörk á sex mínútum.

„Ég vissi ekki að þetta voru bara sex mínútur, þetta tók skamman tíma. Ég var heppin í fyrsta markinu en í hinum leið mér vel og frábært að komast þremur mörkum yfir."
Behnke hefur nú skorað sex mörk í síðustu þremur leikjum og Haukar unnu í gærkvöldi sinn fjórða leik í röð í deildinni.
Sjáðu viðtalið við Viennu Behnke frá því í gær hér að neðan.
Athugasemdir