Fotbolti.net
24.08.19 - 12:40
Ívan Guðjón Baldursson

Tuchel: Neymar gæti spilað á morgun

Tuchel: Neymar gæti spilað á morgun
Canon

Mynd: Getty Images

Thomas Tuchel, þjálfari PSG, staðfesti í viðtali að Neymar gæti spilað með liðinu gegn Toulouse á morgun.
Neymar hefur verið frá vegna meiðsla síðan í vor en hann er búinn að ná fullum bata.

Tuchel segir þó að hausinn á Neymar þurfi að vera í lagi vilji hann spila leikinn á morgun. Real Madrid og Barcelona hafa sýnt honum áhuga í sumar og hefur brasilíska stórstjarnan verið sterklega orðuð við brottför.

„Neymar gæti spilað ef ástandið milli hans og félagsins verður leyst á morgun. Hann er tilbúinn til að spila en framtíð hans hefur ekki enn verið ákveðin. Kannski gerist það á morgun," sagði Tuchel.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.