Fotbolti.net
24.09.16 - 10:24
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Donni hættir með Þórsara (Staðfest)

Síðasti leikurinn gegn KA í dag

Donni (hér til vinstri) stýrir sínum síðasta leik í dag

Donni (hér til vinstri) stýrir sínum síðasta leik í dag

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Hall­dór Jón Sig­urðsson, eða Donni eins og hann er oftast kallaður, mun stýra Þór frá Akureyri í síðasta sinn í dag þegar liðið fær nágrannana úr KA í heim­sókn í lokaum­ferð In­kasso-deild­ar­inn­ar. Donni til­kynnti stuðnings­mönn­um Þórs þetta í morg­uns­árið.

Donni var ráðinn til Þórs í október 2014, en þar áður hafði hann þjálfað Tindastól og verið aðstoðarþjálfari hjá Val. Hann er aðeins 32 ára gamall og á því framtíðina fyrir sér í þjálfun.
Donni seg­ir í skrif­um til stuðnings­manna að vegna fjöl­skyldu­ástæðna sé hann knú­inn til að flytja frá Ak­ur­eyri á þess­um tíma­punkti og seg­ir að leikurinn í dag sé hans síðasti sem þjálf­ari Þórs, í bili allavega.

„Leikurinn í dag mun verða síðasti leikur minn sem þjálfari Þórs (í bili). Það er vegna fjölskylduástæðna að við sjáum okkur knúin að flytja frá Akureyri á þessum tímapunkti,\" segir Donni í skrifum sínum.

„Þór er al­veg frá­bært fé­lag og á bjarta framtíð fyr­ir sér. Ég lít á það sem sann­an heiður að hafa fengið að þjálfa hjá þessu fé­lagi og ég von­ast til að fá tæki­færi til að stýra Þór aft­ur síðar.\"

Inkasso-deildinni lýkur í dag, en Þór er fyrir lokaumferðina með 33 stig í fjórða sæti. Leikur Þórs og KA hefst klukkan 13:00 og er í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport 4.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.