Mason Mount og Christian Pulisic verða ekki með Chelsea gegn Manchester City í ensku úrvalsdeildinni á morgun.
Mount kom inná fyrir N'Golo Kante í deildabikarleiknum gegn Aston Villa á dögunum.
Enski landsliðsmaðurinn kláraði leikinn en getur ekki verið með í stórleiknum gegn Manchester City vegna meiðsla. Christian Pulisic er einnig fjarri góðu gamni.
„Mount er auðvitað vonsvikinn og ég sá þetta ekki í leiknum því hann spilaði í gegnum meiðslin. Hann kláraði leikinn og var klár í að taka mikilvæga vítaspyrnu, þannig þetta kom á óvart," sagði Tuchel.
„Hann er að taka risastór skref og kannski hefði hann náð leiknum ef hann hefði verið á sunnudag. Þetta eru minniháttarmeiðsli en auðvitað vonbrigði fyrir hann og okkur því þetta er leikmaður sem við treystum á."
Athugasemdir