Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
banner
   lau 24. september 2022 10:45
Ívan Guðjón Baldursson
Æfingaleikir: Messi með tvennu - Síle og Bandaríkin töpuðu
Mynd: EPA
Mynd: Getty Images
Mynd: Getty Images
Mynd: Getty Images

Það var eitthvað um æfingalandsleiki í gær þar sem Lionel Messi skoraði tvennu í góðum sigri Argentínu gegn Hondúras er liðin mættust í Miami.


Lautaro Martinez skoraði einnig í sigrinum og var nafni hans Lisandro í byrjunarliðinu ásamt Giovani Lo Celso. Julian Alvarez, leikmaður Manchester City, kom inn af bekknum fyrir Lautaro í leikhlé. Þá fékk Alexis Mac Allister, leikmaður Brighton, að spila síðustu 20 mínúturnar.

Argentína sigraði gegn Hondúras í nótt en fyrr í gærkvöldi tapaði Síle gegn Marokkó er liðin mættust á Spáni. Marokkó verðskuldaði sigurinn þar sem Abdelhamid Sabiri, leikmaður Sampdoria, tryggði hann með marki eftir góðan undirbúning frá Amine Harit, sem er á láni hjá Marseille.

Úrúgvæ tapaði þá óvænt gegn Íran er liðin mættust í Austurríki á meðan Paragvæ lagði Sameinuðu arabísku Furstadæmin að velli og Ekvador gerði jafntefli við Sádí-Arabíu.

Kamerún tapaði óvænt gegn Úsbekistan og þá skoruðu úrvalsdeildarmennirnir Hwang Hee-chan og Son Heung-min í 2-2 jafntefli Suður-Kóreu gegn Kosta Ríka.

Að lokum töpuðu Bandaríkin fyrir Japönum á meðan Kanada sigraði Katar í undirbúningsleik Katara fyrir HM í heimalandinu. Bandaríkin áttu einstaklega slakan leik gegn Japan þar sem Japanir voru óheppnir að sigra ekki stærra.

Argentína 3 - 0 Hondúras
1-0 Lautaro Martinez ('16)
2-0 Lionel Messi ('45, víti)
3-0 Lionel Messi ('69)

Marokkó 2 - 0 Síle
1-0 Sofiane Boufal ('66, víti)
2-0 Abdelhamid Sabiri ('78)

Úrúgvæ 0 - 1 Íran
0-1 M. Taremi ('79)

Suður-Kórea 2 - 2 Kosta Ríka
1-0 Hwang Hee-chan ('28)
1-1 Jewison Bennette ('41)
1-2 Jewison Bennette ('63)
2-2 Son Heung-min ('85)
Rautt spjald: E. Alvarado, Kosta Ríka ('80)

Japan 2 - 0 Bandaríkin
1-0 D. Kamada ('24)
2-0 K. Mitoma ('88)

Kanada 2 - 0 Katar 
1-0 Cyle Larin ('4)
2-0 Jonathan David ('13)

Írak 1 - 1 Óman

Kamerún 0 - 2 Úsbekistan

Paragvæ 1 - 0 Sameinuðu arabísku Furstadæmin

Sádí-Arabía 0 - 0 Ekvador

Malí 1 - 0 Sambía

Alsír 1 - 0 Gínea

Jórdanía 2 - 0 Sýrland

Eþíópía 1 - 1 Súdan


Athugasemdir
banner
banner
banner