Arsenal og Liverpool eiga möguleika á að fá Vini Jr - Gravenberch fær nýjan samning - Ekitike biðst afsökunar
   mið 24. september 2025 06:00
Ívan Guðjón Baldursson
Frí rútuferð frá Sauðárkróki og upphitun á Ölveri
Það voru læti eftir lokaflautið í sigri Tindastóls gegn Kormáki/Hvöt.
Það voru læti eftir lokaflautið í sigri Tindastóls gegn Kormáki/Hvöt.
Mynd: Skjáskot
Tindastóll spilar við Víking Ólafsvík í úrslitaleik Fótbolta.net bikarsins á föstudaginn og býður Skagafjörður upp á fría rútuferð fyrir stuðningsmenn.

Rútan leggur af stað klukkan 13:00 og stoppar í Ölveri þar sem stuðningsmenn hita upp áður en þeir mæta á leikinn. Tónlistarmaðurinn vinsæli Helgi Sæmundur sér um að halda uppi stemningunni.

Tindastóll lagði Árborg, Þrótt Vogum og KFG að velli áður en komið var í undanúrslitin. Þar spiluðu Sauðkrækingar nágrannaslag við Kormák/Hvöt sem reyndist funheitur og gengu gestirnir frá Blönduósi allt annað en sáttir frá þeirri viðureign.

Tindastóll hefur verið spútnik lið Fótbolta.net bikarsins þar sem liðið leikur í 3. deild og er búið að slá út þrjá andstæðinga úr 2. deildinni á leið sinni í úrslitaleikinn. Víkingur Ó. leikur í 2. deild.


Athugasemdir