Fotbolti.net
24.10.17 - 14:37
Magnús Már Einarsson

Gary Martin til Lilleström (Staðfest)

Simon Mesfin íþróttastjóri Lilleström, Gary Martin og Ólafur Garðarsson umboðsmaður hans eftir undirskrift.

Simon Mesfin íþróttastjóri Lilleström, Gary Martin og Ólafur Garðarsson umboðsmaður hans eftir undirskrift.

Canon

Mynd: Lilleström

Enski framherjinn Gary Martin hefur samið við Lilleström í Noregi. Gary skrifaði undir þriggja ára samning hjá félaginu í dag en hann verður í treyju númer níu. Félagaskiptaglugginn í Noregi er lokaður og því spilar Gary ekki með Lilleström fyrr en á næsta ári.

Gary spilaði á Íslandi með ÍA, KR og Víkingi R. á árunum 2010 til 2016 en árið 2014 var hann markakóngur í Pepsi-deildinni.
Hinn 27 ára gamli Gary yfirgaf herbúðir Lokeren í síðustu viku en hann var ekki inni í myndinni þar.

Gary spilaði með Lilleström á láni frá Víkingi R. síðustu mánuðina í fyrra en Rúnar Kristinsson var þá þjálfari norska félagsins.

Gary skoraði þá fjögur mörk í tíu leikjum og hjálpaði Lilleström að bjarga sér frá falli. Í kjölfarið tók Rúnar við Lokeren og keypti Gary þangað.

Lilleström er í 11. sæti af 16 liðum í norsku úrvalsdeildarinnar þegar fjórar umferðir eru eftir. Liðið er þremur stigum á undan Tromsö sem er í umspilssæti fyrir fall.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.