24.10.18 - 11:49
Elvar Geir Magnússon
Ævar Ingi áfram hjá Stjörnunni (Staðfest)

Ævar áfram með Stjörnunni.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Ævar áfram með Stjörnunni.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Ævar Ingi Jóhannesson hefur framlengt samning sinn við Stjörnuna til næstu tveggja ára.
<i>„Það er okkur Stjörnumönnum sönn ánægja að njóta krafta Ævars næstu árin en hann býr bæði yfir miklum hraða og krafti,"</i> segir í tilkynningu Stjörnunnar.
Ævar er 23 ára vængmaður sem kom til Stjörnunnar frá KA fyrir tímabilið 2016. Hann skoraði eitt mark í fjórtán leikjum í Pepsi-deildinni í sumar en hann hefur verið óheppinn með meiðsli undanfarin tvö tímabil.
Samkvæmt heimildum Fótbolta.net vildi KA fá Ævar aftur í sínar raðir en á endanum ákvað hann að framlengja við bikarmeistarana.
Stjarnan hafnaði í 3. sæti í Pepsi-deildinni í sumar en Ævar kom inn af bekknum þegar liðið vann Breiðablik í bikarúrslitaleiknum.

Ævar Ingi Jóhannesson hefur framlengt samning sinn við Stjörnuna til næstu tveggja ára. Það er okkur Stjörnumönnum sönn ánægja að njóta krafta Ævars næstu árin en hann býr bæði yfir miklum hraða og krafti. #InnMedBoltann pic.twitter.com/k47lakaGNT
— Stjarnan FC (@FCStjarnan) October 24, 2018