24.10.18 - 11:21
Elvar Geir Magnússon
Guðný Árna í Val (Staðfest)


Mynd: Fótbolti.net - J.L.


Mynd: Fótbolti.net - J.L.

Guðný Árnadóttir hefur skrifað undir þriggja ára samnig við Val.
„Guðný hefur leikið með FH undanfarin ár og er gríðarlega öflugur leikmaður sem við bjóðum velkomna í Val," segir í tilkynningu Vals.
„Guðný hefur leikið með FH undanfarin ár og er gríðarlega öflugur leikmaður sem við bjóðum velkomna í Val," segir í tilkynningu Vals.
Guðný, sem er 18 ára, á að baki 68 leiki með meistaraflokki og skorað átta mörk. Hún hefur einnig leikið þrjá A-landsleiki og 34 leiki með yngri landsliðum Íslands.
Valur endaði í fjórða sæti Pepsi-deildar kvenna en FH endaði í neðsta sæti og féll.
Hér fyrir neðan má sjá viðtal við Guðnýju frá Valsmönnum
Valur endaði í fjórða sæti Pepsi-deildar kvenna en FH endaði í neðsta sæti og féll.
Hér fyrir neðan má sjá viðtal við Guðnýju frá Valsmönnum
UNG REYNSLUMIKL LANDSLIÐSKONA TIL LIÐS VIÐ VAL
— ValurFotbolti (@Valurfotbolti) October 24, 2018
Knattspyrnudeild Vals hefur gengið frá 3ja ára samningi við Guðnýju Árnadóttir. #valurfotbolti #valur #fotboltinetRT #fotboltinet #433_is #ksi https://t.co/PSWEB3vUOR pic.twitter.com/R0tgh16Fpc
