Fotbolti.net
24.10.19 - 13:39
Magnús Már Einarsson

Eiríkur Þorvarðar nýr markmannsþjálfari Vals (Staðfest)

Eiríkur og Heimir á hliðarlínunni í leik með FH.

Eiríkur og Heimir á hliðarlínunni í leik með FH.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - J.L.

Eiríkur Þorvarðarson hefur verið ráðinn nýr markmannsþjálfari hjá meistaraflokki karla í Val en hann hefur skrifað undir þriggja ára samning við félagið.

Eiríkur tilkynnti í gær að hann væri hættur hjá FH eftir 14 ár sem markmannsþjálfari þar. FH varð sex sinnum Íslandsmeistari og tvívegis bikarmeistari þegar Eiríkur var þar.

Hann mætir nú á Hlíðarenda þar sem hann hittir fyrir Heimi Guðjónsson, nýráðinn þjálfara Vals. Eiríkur og Heimir störfuðu lengi saman hjá FH.
„Við Eiríkur höfum áður átt í samstarfi sem var farsælt og gott og það er frábært að fá tækifæri á að vinna saman að nýju," sagði Heimir Guðjóns.

Eiríkur sem er sálfræðingur að mennt lék á árum áður með Breiðablik, HK, Víking og Sindra á að baki 13 leiki með U19 og U16 ára landsliðum Íslands. Eiríkur hóf sinn þjálfaraferil í Fram 2005 en
ári síðar gekk hann til liðs við FH.

Eiríkur tekur við sem markmannsþjálfari Vals af Rajko Stanisic sem hætti á dögunum eftir langt starf á Hlíðarenda.

„Mjög ánægður að fá tækifæri með Val og vinna í því metnaðarfulla umhverfi sem félagið hefur skapað og vinna með öllu því góða fólki sem er í félaginu," sagði Eiríkur eftir undirskrift.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.