Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 24. október 2020 14:12
Aksentije Milisic
Moyes: Frábært stig gegn góðu liði
Mynd: Getty Images
David Moyes, stjóri West Ham, var sáttur með að ná stigi af Manchester City í dag.

Michail Antonio kom heimamönnum yfir með glæsilegu marki og var West Ham yfir í hálfleik. Phil Foden kom inn á í hálfleik og jafnaði leikinn fyrir City í síðari hálfleiknum.

„Ég tek þetta frábæra stig gegn góðu liði. Frábær karakter hjá mínum mönnum. City hefur komið hingað undanfarin ár og unnið stórsigra svo frammistaðan í dag var mjög góð hjá okkur."

„Antonio þurfti að fara útaf vegna meiðsla. Ég vona að þetta hafi bara verið krampi og ekkert alvarlegt. Hann er algjör lykilmaður fyrir okkur. Flest lið þurfa góða „níu" og við erum með eina slíka."

„Við erum að reyna búa til ungt og öflugt lið. Thomas Soucek og Declan Rice hafa verið frábærir og ég er mjög sáttur með þá."
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner