Fotbolti.net
24.11.12 - 11:46
Ívan Guðjón Baldursson

Harry Redknapp nýr stjóri QPR (Staðfest)

Harry Redknapp nýr stjóri QPR (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Queens Park Rangers hefur staðfest að Harry Redknapp er búinn að taka við stjórnartaumum liðsins, en frá þessu var greint í gær á Fótbolta.net.

Redknapp skrifaði undir tveggja og hálfs árs samning og verður hann á Old Trafford síðar í dag til að horfa á liðið spila gegn Manchester United.
,,Ég er mjög ánægður með að vera orðinn knattspyrnustjóri hjá QPR,\" sagði Redknapp við opinbera vefsíðu félagsins.

,,Þegar ég talaði við eigendur félagsins og heyrði það sem þeir höfðu að segja áttaði ég mig á því að þetta var óhafnanlegt tilboð.

,,Það er mikið af gæðum í liðinu en af einhverri ástæðu hefur liðið ekki verið að ná góðum úrslitum og ég get ekki beðið eftir að byrja að vinna í að ná jákvæðum úrslitum.\"


Félagið gaf út opinbera yfirlýsingu fyrr í dag þar sem tekið var fram að Redknapp mun ekki stýra QPR gegn Man Utd heldur mun hann sitja í stúkunni og horfa á leikinn þaðan. Tony Fernanes, stærsti hlutaeigandi QPR, er mjög ánægður með nýja manninn.

,,Harry var alltaf aðalmaðurinn til að taka við þessu starfi. Allir í stjórninni voru sammála um að hann væri rétti maðurinn og við erum mjög ánægðir með að hann hafi tekið samningstilboðinu.

,,Hann hefur sannað sig sem knattspyrnustjóri í Úrvalsdeildinni og er nákvæmlega maðurinn sem við þurfum í starfið.\"

Heimild: The Guardian

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.