24.11.12 - 14:15
Magnús Már Einarsson
Pétur Heiðar tekur við Dalvík/Reyni (Staðfest)

Mynd: Dalvík/Reynir

Mynd: Dalvík/Reynir
Pétur Heiðar Kristjánsson hefur verið ráðinn þjálfari Dalvíkur/Reynis í 2. deildinni.
Pétur Heiðar tekur við starfinu af Þóri Áskelssyni sem hætti eftir síðasta tímabil.
Í sumar var Pétur Heiðar spilandi aðstoðarþjálfari hjá Dalvík/Reyni en hann mun halda áfram að leika með liðinu næsta sumar.
Leit stendur yfir að nýjum aðstoðarþjálfara og þau mál ættu að skýrast fljótlega.

Á næstu dögum verður farið í samningagerð við leikmenn liðsins og frekari frétta er að vænta af leikmannamálum á næstu misserum segir í tilkynningu frá Dalvík/Reyni.
Dalvík/Reynir endaði í sjötta sæti í 2. deildinni í sumar en liðið var að leika sitt annað tímabil þar.