Fotbolti.net
24.11.16 - 11:10
Magnús Már Einarsson

Steven Gerrard leggur skóna á hilluna (Staðfest)

Ferlinum lokið.

Ferlinum lokið.

Canon

Mynd: Getty Images

Steven Gerrard, fyrrum fyrirliði Liverpool, hefur ákveðið að leggja skóna á hilluna en þetta staðfesti hann rétt í þessu.

Hinn 36 ára gamli Gerrard hefur undanfarin tvö tímabil leikið með LA Galaxy í Bandaríkjunum en hann tilkynnti á dögunum að hann yrði ekki áfram þar.
Gerrard er goðsögn hjá Liverpool og spilaði þar alla sína tíð áður en hann fór til LA Galaxy sumarið 2015.

Gerrard spilaði 17 tímabil með Liverpool en á þeim tíma skoraði hann 186 mörk í 710 leikjum.

Fyrsti leikur Gerrard með Liverpool var árið 1998 en árið 2003 tók hann við fyrirliðabandinu af Sami Hyypia.

Gerrard leiddi Liverpool til sigurs í Meistaradeildinni árið 2005 auk þess sem hann vann enska bikarinn með liðinu 2001 og 2006.

Á ferli sínum var Gerrard átta sinnum valinn í lið tímabilsins í ensku úrvalsdeildinni en það er met.

MK Dons í ensku C-deildinni vildi fá Gerrard sem knattspyrnustjóra í síðustu viku en hann hafnaði því tilboði. Gerrard segist ekki vera tilbúinn í að gerast knattspyrnustjóri strax en hann hefur hins vegar verið orðaður við stöðu í þjálfaraliði Liverpool.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.