Fotbolti.net
24.11.17 - 12:15
Magnús Valur Böðvarsson

Marel Baldvinsson ráðinn þjálfari Álftaness (Staðfest)

Guðjón Pétur Lýðsson, Marel Baldvinsson og Stefán Arinbjarnason eftir undirritun samningsins

Guðjón Pétur Lýðsson, Marel Baldvinsson og Stefán Arinbjarnason eftir undirritun samningsins

Canon

Mynd: Magnús Valur Böðvarsson

Álftanes hefur ráðið til sín þjálfara en það er enginn annar en Marel Jóhann Baldvinsson en hann tekur við þjálfarastarfinu af Kristjáni Ómari Björnssyni sem tók við Haukum í haust.

Þá tilkynntu Álftanes nýjan aðalstyrktaraðila en það er fyrirtækið S.Helgason sem gerði 2 ára samstarfssamning.
Marel þarf vart að kynna fyrir fólki en hann spilaði á sínum ferli 17 landsleiki fyrir Íslands hönd og lék lengi vel sem atvinnumaður í Belgíu og Noregi. Þá varð hann markakóngur í efstu deild árið 2006 með 11 mörk í 13 leikjum fyrir Blika en alls skoraði hann 29 mörk í 99 leikjum fyrir Breiðablik, Stjörnuna og Val.

Marel skrifaði undir tveggja ára samning við Álftanes en hann hefur á undanförnum árum búið í Danmörku.

Í tilkynningu frá Álftanes segir að félagið bindi miklar vonir við Marel en mikill metnaður er hjá félaginu að reyna koma liðinu á hærri stall en langtímamarkmið félagsins er að komast í efri deildir á næstu árum og eru margir tilbúnir að leggja til hendur á vogarskálarnar til þess að það heppnist.

Álftanes tilkynnti einnig 2 ára samstarfssamning við S.Helgason sem er fyrirtæki sem sérhæfir sig í steinsmíði svo sem borðplötur, legsteinar, flísa og vatnsbretta og hefur gert allar götur síðan 1953.
Guðjón Pétur Stjórnarmaður Álftaness, Brjánn Guðjónsson frá S helgason og Stefán Arinbjarnarson stjórnarmaður Álftaness.

Guðjón Pétur Stjórnarmaður Álftaness, Brjánn Guðjónsson frá S helgason og Stefán Arinbjarnarson stjórnarmaður Álftaness.

Canon

Mynd: Magnús Valur Böðvarsson

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.