Fotbolti.net
24.11.21 - 13:30
Elvar Geir Magnússon

Leonardo mætti til fundar á hótelherbergi Pochettino

Mauricio Pochettino og Leonardo.

Mauricio Pochettino og Leonardo.

Canon

Mynd: EPA

Leonardo, íþróttastjóri Paris Saint-Germain, fundaði með Mauricio Pochettino í gærkvöldi. Þeir hittust á neyðarfundi á hótelherbergi Pochettino eftir að staðfest var að áhugi Manchester United á argentínska stjóranum var staðfestur.

United er í stjóraleit eftir að Ole Gunnar Solskjær var rekinn um síðustu helgi en fyrsta tilraun þeirra til að fá Pochettino hefur mistekist samkvæmt frétt Manchester Evening News.
Pochettino mun vera tilbúinn að taka við United á miðju tímabili og er sagður ósáttur í París. Hann býr á hóteli í borginni á meðan fjölskylda hans er búsett í London.

Samkvæmt L'Equipe fór Leonardo sáttur af fundinum þar sem Pochettino staðfesti að hann sé ekki ákafur í að stökkva frá borði og skilja félagið eftir stjóralaust.

Sjá einnig:
Man Utd í pattstöðu á meðan PSG reynir að sannfæra Zidane
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.