Fotbolti.net
24.12.12 - 08:04
Hafliði Breiðfjörð

Mickael Landreau til Bastia (Staðfest)

Mickael Landreau.

Mickael Landreau.

Canon

Mynd: Getty Images

Markvörðurinn Mickael Landreau er genginn til liðs við Bastia á frjálsri sölu en hann semur við félagið út árið.
Landreau sem er 33 ára gamall var samningslaus eftir að hafa rift samningi við Lille 6. desember síðastliðinn.

Hann hóf feril sinn hjá Nantes en fór svo til Paris Saint Germain og var svo í þrjú ár hjá Lille. Hann vann deildina og bikartvennuna með liðinu árið 2011 og var samningsbundinn til 2011.

,,Það mikilvægasta er að blómstra innan vallar. Ég gat það ekki lengur,\" sagði Landreau þegar hann fór frá Lille. ,,Eitt og hálft ár er langur tími sem eftir er þegar maður á erfiða daga. Ég hef því fengið mig lausan bæði íþróttalega og andlega.\"

Heimild: PA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.