24.12.16 - 11:26
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Draxler fer til PSG (Staðfest)

Draxler gengur til liðs við PSG

Mynd: Getty Images

Draxler gengur til liðs við PSG

Mynd: Getty Images

Þýski landsliðsmaðurinn Julian Draxler er genginn til liðs við franska meistaraliðið Paris Saint-Germain. Þetta var staðfest nú rétt í þessu.
Hinn 23 ára gamli Draxler kemur til PSG frá Wolfsburg í Þýskalandi, en þar hefur hann verið út í kuldanum að undanförnu. Draxler hefur oftar en einu sinni reynt að koma sér frá Wolfsburg.

Hann er nú farinn burt eftir að hafa verið aðeins eitt og hálft ár í herbúðum Wolfsburg, en hann gekk til liðs við félagið fyrir metfé sumarið 2015 og gerði fimm ára samning.
Líklegt þykir að kaupverðið sé í kringum 45 milljónir evra. PSG mun borga 35 milljónir evra núna fyrir hann og svo gætu 10 milljónir til viðbótar bæst við síðar.
PSG hefur valdið vonbrigðum í deildinni heima fyrir þar sem liðið er með 39 stig í þriðja sæti. Höfuðborgarliðið hefur unnið deildina fjórum sinnum í röð, en það er spurning hvort að það breytist núna.

Farewell - @Julian_Draxler heading for France with @PSG_English ➡️ https://t.co/IGErVyZLdH pic.twitter.com/jJ2l6WkxQF
— VfL Wolfsburg EN (@VfLWolfsburg_EN) December 24, 2016