24.12.19 - 09:36
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Giuseppe Iachini tekur við Fiorentina (Staðfest)

Giuseppe Iachini.

Mynd: Getty Images

Giuseppe Iachini.

Mynd: Getty Images
Fiorentina hefur ráðið fyrrum leikmann sinn, Giuseppe Iachini, sem nýjan knattspyrnustjóra félagsins. Hann tekur við af Vincenzo Montella, sem var rekinn síðasta laugardag.
Iachini spilaði 126 leiki með Fiorentina á leikmannaferli sínum. Á þjálfaraferlinum hefur hann komið fjórum liðum upp úr B-deild Ítalíu, í úrvalsdeildina.
Hann var rekinn frá Empoli í mars síðastliðnum.
„Staða liðsins í deildinni neyddi okkur til að skipta um þjálfara," sagði Rocco Commisso, eigandi félagsins. „Við völdum Iachini vegna þess að hann er frábær maður með tengsl við Flórens og Fiorentina."
Hinn 55 ára gamli Iachini er mjög reynslumikill í þjálfun. Fiorentina er fjórtánda félagið sem hann þjálfar, en hann endist yfirleitt ekki lengi í starfi.
Fiorentina er í augnablikinu í 15. sæti, þremur stigum frá fallsæti.