24.12.19 - 16:47
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Mandzukic til Al-Duhail (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Króatíski framherjinn Mario Mandzukic er genginn í raðir Al-Duhail í Katar frá Juventus.
Hjá Al-Duhail mun hann hitta fyrrum samherja sinn, varnarmanninn Mehdi Benatia. Þjálfari Al-Duhail er Rui Faria, fyrrum aðstoðarmaður Jose Mourinho.
Mandzukic hafði einnig verið orðaður við Manchester United, en nú er það ljóst að hann fer til Katar.
Hann er 33 ára gamall og lék með Juventus frá 2015. Þar áður var hann meðal annars á mála hjá Bayern München og Atletico Madrid.
Al-Duhail er á toppnum í Katar, taplausir eftir 11 leiki. Al Arabi, lærisveinar Heimis Hallgrímssonar, eru í sjötta sætinu.

Official: Mario Mandzukic to Al Duhail. Confirmed. ✔️ https://t.co/tcwH9hfre6 https://t.co/Bk7EcIzVOD
— Fabrizio Romano (@FabrizioRomano) December 24, 2019