24.12.19 - 10:22
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Pardew tekur við ADO Den Haag (Staðfest)

Pardew er 58 ára gamall.

Mynd: Getty Images

Pardew er 58 ára gamall.

Mynd: Getty Images
Alan Pardew er tekinn við sem þjálfari ADO Den Haag í Hollandi og verður Chris Powell, fyrrum stjóri Southend, aðstoðarmaður hans. Þetta segir í fréttatilkynningu frá hollenska félaginu á þessum aðfangadegi.
Pardew skrifar undir samning út þetta tímabil.
„Pardew hefur reynslu í að tækla erfiðar stöður, en hann þekkir líka leiðina að árangri," segir í tilkynningu ADO Den Haag.
Talið er að Pardew hafi verið í stúkunni þegar Den Haag tapaði 6-1 fyrir Ajax í hollensku úrvalsdeildinni um síðustu helgi. Það var leikur í síðustu umferð fyrir vetrarfrí. Hollenski boltinn fer aftur af stað þann 17. janúar.
Pardew, sem er fyrrum stjóri Crystal Palace og Newcastle, hefur ekki verið við stjórn hjá félagi síðan hann tók við West Bromwich Albion í fyrra en mistókst að bjarga þeim frá falli úr úrvalsdeildinni.
Þetta verður hans fyrsta starf utan Englands.

🗞 We've got some news!
— ADO Den Haag 🔰 (@ADODenHaag) December 24, 2019
🤝 Alan Pardew is onze nieuwe hoofdtrainer. De ervaren Engelsman tekent voor de rest van het seizoen en neemt Chris Powell mee als assistent.#WelcomeAlan #WelcomeChris