Fotbolti.net
25.01.17 - 09:10
Magnús Már Einarsson

Coutinho framlengir við Liverpool (Staðfest)

Áfram hjá Liverpool.

Áfram hjá Liverpool.

Canon

Mynd: Getty Images

Philippe Coutinho hefur skrifað undir nýjan fimm ára samning við Liverpool. Samningurinn færir honum 150 þúsund pund í laun á viku en hann er nú launahæsti leikmaður Liverpool.
Coutinho hefur verið einn allra besti leikmaður Liverpool síðan hann kom til félagsins frá Inter á 8,5 milljónir punda fyrir fjórum árum.

Coutinho hefur ítrekað verið orðaður við Barcelona undanfarna mánuði en Liverpool hefur nú gert nýjan samning við Brasilíumanninn.

„Ég er mjög þakklátur félaginu og þetta sýnir ánægju mína hér,\" sagði Coutinho eftir undirskrift en hann hefur skorað 34 mörk í 163 leikjum með Liverpool.

„Ég skrifaði undir samning til að vera hér í nokkur ár í viðbót því að það er mikill heiður fyrir mig.\"

„Ég er ánægður með að hafa verið tekinn opnum örmum hjá öllum hjá félaginu og stuðningsmönnunum frá fyrsta degi.\"
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.