Fotbolti.net
25.01.17 - 17:00
Magnús Már Einarsson

Leiknir F. fær pólskan markvörð (Staðfest)

Adrian Murcia Rodriguez verður ekki áfram í markinu hjá Leikni F.

Adrian Murcia Rodriguez verður ekki áfram í markinu hjá Leikni F.

Canon

Mynd: Raggi Óla

Leiknir Fáskrúðsfirði hefur samið við pólska markvörðinn Robert Winogrodzki.
Robert er 23 ára gamall en hann lék síðast með BSG Wismut Gera í fimmtu efstu deild í Þýskalandi.

Þar áður lék Robert með Florø SK í norsku C-deildinni sem og MKS Kluczbork og Miedz Legnica í heimalandi sínu.

Hinn spænski Adrian Murcia Rodriguez varði mark Leiknis á síðasta tímabili en hann verður ekki áfram hjá liðinu.

Robert á að fylla skarð hans og spila í markinu hjá Fáskrúðsfirðingum í Inkasso-deildinni í sumar.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.