Fotbolti.net
25.01.17 - 07:30
Kristófer Kristjánsson

Luis Hernandez farinn frá Leicester til Malaga (Staðfest)

Luis Hernandez spilaði aðeins átta leiki fyrir Leicester

Luis Hernandez spilaði aðeins átta leiki fyrir Leicester

Canon

Mynd: Getty Images

Luis Hernandez hefur yfirgefið Leicester og gengið til liðs við Malaga á Spáni.
Hernandez spilaði aðeins átta leiki fyrir englandsmeistarana en hann gekk til liðs við Leicester síðasta sumar frá Sporting Gijon.

Honum tókst hinsvegar ekki að leysa af hólmi Danny Simpson sem hægri bakvörður liðsins og hefur nú snúið aftur til Spánar fyrir 1,7 milljón punda.

Þessi 27 ára varnarmaður byrjaði þrjá úrvalsdeildarleiki og fjóra í riðlakeppni Meistaradeildarinnar.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.