Fotbolti.net
25.01.17 - 16:30
Elvar Geir Magnússon

Mauro Zarate til Watford (Staðfest)

Zarate (til vinstri) er Argentínumaður.

Zarate (til vinstri) er Argentínumaður.

Canon

Mynd: Getty Images

Sóknarmaðurinn Mauro Zarate er kominn aftur í enska boltann, tólf mánuðum eftir að hann yfirgaf West Ham og gekk í raðir Fiorentina á Ítalíu.

Zarate, sem er 29 ára, hefur skrifað undir tveggja og hálfs árs samning við Watford. Kaupverð var ekki gefið upp.
Zarate er víðförull en hann hefur meðal annars spilað fyrir Velez Sarsfield, Al Sadd, Birmingham City, Lazio og QPR. Hann varð ítalskur bikarmeistari 2009.

Þegar hann lék með West Ham skoraði hann sjö mörk í 29 leikjum.

Watford situr í fjórtánda sæti ensku úrvalsdeildarinnar.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.