Fotbolti.net
25.01.17 - 21:50
Bjarni Þórarinn Hallfreðsson

Patrice Evra til Marseille (Staðfest)

Evra er kominn aftur heim til Frakklands

Evra er kominn aftur heim til Frakklands

Canon

Mynd: Getty Images

Franski landsliðsmaðurinn Patrice Evra er genginn til liðs við franska liðið Marseille og skrifaði hann undir 18 mánaða samning en hann kemur frá ítalska stórliðinu Juventus.
Evra gerði garðinn frægann með Manchester United en hann gekk til liðs við félagið frá Monaco árið 2006.

Með Man Utd vann hann fimm meistaratitla og Meistaradeild Evrópu.

Árið 2014 fór hann til Ítalíu og samdi við Juventus og þar sigraði hann ítölsku deildina tvisvar sinnum ásamt því að fara með liðinu í úrslitaleik Meistaradeildarinnar.

Á þessu tímabili hefur Evra lítið fengið að spila með Juventus og vildi hann fara frá félaginu.

Crystal Palace var á höttunum eftir franska landsliðsmanninum en hann ákvað þess í stað að snúa aftur heim til Frakklands.

DEAL DONE: Former Manchester United defender Patrice Evra has signed for Marseille on an 18-month contract. (Source: @OM_Officiel) pic.twitter.com/nHh8GjO6XY

— Transfer News Live (@DeadlineDayLive) January 25, 2017

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.