25.01.19 - 07:00
Hafliði Breiðfjörð
Argentínskur miðjumaður í Brighton (Staðfest)

Frá kynningu Argentínumannsins í gær.

Mynd: Brighton

Frá kynningu Argentínumannsins í gær.

Mynd: Brighton
Brighton tilkynnti í gær að félagið hafi gengið frá kaupum á Argentínumanninum Alexis Mac Allister.
Hann er tvítugur og kemur til félagsins frá Argentinos Juniors í heimalandinu. Margir velta kannski fyrir sér nafninu en á því er góð skýring því Mac Alliser er af skoskum og írskum ættum.
Hann gerði fjögurra og hálfs árs samning við Brighton en mun ekki koma strax til félagsins heldur er hann lánaður beint til baka til Argentinos Juniors út þetta tímabil.
„Alexis er spennandi ungur leikmaður sem við erum að kaupa fyrir framtíðina. Hann hefur þegar sýnt hvað hann getur í Argentínu," sagði Chris Hughton stjóri Brighton á vef félagsins.
Hann sagði að það væri best fyrir hag allra aðila að hann verði lánaður til baka svo hann fái að halda áfram að spila í hverri viku en ætlar að fylgjast með honum þar.
Hann er miðjumaður og hefur skorað 8 mörk í 58 leikjum fyrir Argentinos Juniors, þar á meðal þrjú í níu leikjum á þessu tímabili.