Fotbolti.net
25.01.19 - 10:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Bandarískur miðvörður skrifar undir hjá Bayern (Staðfest)

Richards er búinn að skrifa undir langtímasamning hjá Bayern

Richards er búinn að skrifa undir langtímasamning hjá Bayern

Canon

Mynd: Nordic Photos

Bayern München er búið að staðfesta kaup á miðverðinum Chris Richards. Hinn átján ára Richards skrifar undir samning sem gildir til ársins 2023.
Chris Richards kom til Bayern síðasta sumar á láni frá FC Dallas sem leikur í bandarísku MLS deildinni. Hann hefur leikið 21 leik fyrir U-19 ára liðið hjá Bayern og skorað í þeim tvö mörk. Hann var einnig hluti af aðalliði Bayern á undirbúningstímabilinu síðasta sumar.

„Draumur minn er að rætast, mig langaði alltaf að spila fyrir stórt lið í Evrópu og nú er ég hjá einu stærsta félagi heims," sagði Richards við blaðamenn á vegum félagsins.

Jochen Sauer, aðalumsjónarmaðurinn í unglingaliði félagsins, er mjög ánægður með að Richards sé búinn að skrifa undir hjá félaginu.

„Richards er búinn að standa sig mjög vel síðan hann kom til liðsins, við sjáum mikla hæfileika í honum og vonum að hann nái að þróa leik sinn hjá okkur," sagði Sauer við blaðamenn á vegum félagsins.


Heimild: Sky Sports

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.