25.01.19 - 20:39
Ívan Guðjón Baldursson
Jardim tekinn aftur við Mónakó (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Thierry Henry var leystur undan störfum hjá Mónakó í gær og hefur Leonardo Jardim verið staðfestur sem nýr þjálfari félagsins.
Jardim var rekinn eftir slaka byrjun með félagið í haust og hefur Henry ekki tekist að rétta úr kútnum.
Jardim vann frönsku deildina með Mónakó fyrir tveimur árum og lenti í öðru sæti í fyrra en fyrir það stýrði hann félaginu í þriðja sæti.
Jardim er 44 ára gamall og hefur verið án starfs síðan hann var látinn fara frá Mónakó. Hans markmið á tímabilinu er að bjarga liðinu frá falli.
Mónakó er í næstneðsta sæti í deildinni eftir 1-5 tap gegn Strasbourg í síðustu umferð. Jardim getur þó huggað sig við að félagið er aðeins þremur stigum frá öruggu sæti.