25.01.19 - 06:00
Hafliði Breiðfjörð
Margrét Sif í FH (Staðfest)

Margrét Sif er orðin leikmaður FH.

Mynd: FH

Margrét Sif er orðin leikmaður FH.

Mynd: FH
FH tilkynnti í gær að Margrét Sif Magnúsdóttir sé gengin í raðir félagsins að nýju en hún hefur spilað með HK/Víkingi undanfarin rúmlega tvö tímabil
Margrét Sif skrifaði undir tveggja ára samning við FH í gær en hún lék áður með félaginu 2011 - 2016, alls 83 leiki fyrir félagið.

Samtals hefur Margrét Sif leikið 161 leik í meistaraflokki og skorað í þeim 26 mörk.
„Það eru mikil gleðitíðindi fyrir okkur FH-inga að Margrét Sif hafi ákveðið að koma aftur til liðs við FH og það mun styðja við það markmið okkar FH-inga að komast aftur upp í úrvalsdeildina á næsta ári," segir FH í tilkynningu sinni.
FH féll úr Pepsi-deildinni í sumar og eftir tímabilið hætti Orri Þórðarson þjálfun liðsins. Guðni Eiríksson tók við starfinu en hann hefur starfað lengi fyrir FH og var aðstoðarþjálfari í meistaraflokki kvenna 2015 og 2016. Þá gerði hann 2. flokk kvenna að Íslandsmeisturum 2015.