25.01.19 - 15:20
Magnús Már Einarsson
Rakel Hönnu til Reading (Staðfest)

Á leið í enska boltann.

Mynd: Fótbolti.net - Bára Dröfn Kristinsdóttir

Landsliðskonan Rakel Hönnudóttir hefur gengið til liðs við enska félagið Reading en þetta kemur fram á á vefmiðlinum mbl.is í dag. Rakel samdi við Reading til sumarsins 2020.
Á síðasta ári spilaði Rakel með Limhamn Bunkeflo í Svíþjóð og átti stóran þátt í því að bjarga liðinu frá falli úr sænsku úrvalsdeildinni með fimm mörkum í síðustu sex leikjum tímabilsins.
Nokkur lið hafa barist um þjónustu Rakelar að undanförnu en hún ákvað að velja Reading.
„Það var gaman að fá smá athygli og að geta valið úr nokkrum liðum. Ég var með fyrirspurnir frá nokkrum löndum og gat aðeins valið, en mér fannst England mest spennandi. Ég er búin að fylgjast með þessari deild og hvernig hún hefur verið á uppleið. Mér hefur fundist þetta mjög spennandi í langan tíma og þegar þetta kom upp þá lagði ég áherslu á það við umboðsmanninn minn að þetta væri það sem mig langaði mest,“ sagði Rakel við mbl.is.
Reading er í fimmta sæti af ellefu liðum í ensku úrvalsdeildinni en keppni þar er fram á vor. Reading mætir Arsenal um helgina og Rakel gæti spilað sinn fyrsta leik þar ef leikheimild næst í gegn í tæka tíð.
Rakel, sem er þrítug, spilaði áður með Þór/KA og Breiðabliki á Íslandi.

#ReadingFCW would like to introduce you to our new Signing Rakel Hönnudóttir ✍️ #RoyalRakel pic.twitter.com/ECGx1Ns4PV
— Reading FC Women (@ReadingFCWomen) January 25, 2019