25.01.19 - 10:22
Magnús Már Einarsson
Þórður Inga og James Mack í Víking R. (Staðfest)

Arnar Gunnlaugsson, þjálfari Víkings, James Mack, Þórður Ingason og Heimir Gunnlaugsson formaður meistaraflokksráðs.

Mynd: Víkingur R.

Þórður Ingason í leik með Fjölni.

Mynd: Fótbolti.net - Bára Dröfn Kristinsdóttir

Víkingur R. hefur fengið markvörðinn Þórð Ingason og kantmanninn James Mack í sínar raðir en þeir skrifuðu í gær undir tveggja ára samning við félagið.
Þórður og James eru fyrstu nýju leikmennirnir sem Víkingur fær í vetur.
„Knattspyrnudeild Víkings býður leikmennina velkomna til félagsins," segir í fréttatilkynningu frá Víkingi.
Þórður er 30 ára gamall en hann hefur stærstan hluta ferilsins hefur varið mark Fjölnis þar sem hann spilaði síðastliðið sumar. Hann á að auki baki leiki fyrir KR og BÍ/Bolungarvík.
Þórður hefur leikið 244 leiki í Íslandsmóti og bikarkeppni KSÍ en að auki á hann 17 leiki fyrir U17, U19 og U21 árs landslið Íslands.
Danski markvörðurinn Andreas Larsen varði mark Víkings á síðasta tímabili en Þórður mun fá það hlutverk að fylla skarð hans.
James Mack er 30 ára gamall sóknarmaður sem kemur til Víkings frá Vestra. Hann hefur einnig leikið með Selfossi, Chicago Fire, Tourcoing, Charleston Battery, og Ekeanas SC í Bandríkjunum.
Hann hefur tekið þátt í 73 leikjum í Íslandsmóti og bikarkeppni KSÍ og skorað í þeim 24 mörk. James Mack á ættir að rekja til Bandarísku Jómfrúreyja og er sem stendur fyrirliði landsliðs þeirra.

James Mack.

Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson