25.01.19 - 14:19
Magnús Már Einarsson
Victor Moses til Fenerbahce á láni (Staðfest)

Moses í leik gegn Íslandi á HM síðastliðið sumar.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Moses í leik gegn Íslandi á HM síðastliðið sumar.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Tyrkneska félagið Fenerbahce hefur fengið Victor Moses á láni frá Chelsea. Lánssamningurinn gildir í eitt og hálft ár.
Fenerbahce <a href="https://fotbolti.net/fullStory.php?id=269486" target="_blank">er í miklu basli í Tyrklandi</a> en liðið er markatölu frá fallsvæðinu.
Fenerbahce <a href="https://fotbolti.net/fullStory.php?id=269486" target="_blank">er í miklu basli í Tyrklandi</a> en liðið er markatölu frá fallsvæðinu.
Nígeríumaðurinn var fastamaður sem vængbakvörður í 3-4-3 leikkerfi Antonio Conte þegar Chelsea varð meistari tímabilið 2016/2017.
Eftir að Maurizio Sarri tók við síðastliðið sumar og fór í 4-3-3 hefur Moses verið úti í kuldanum.
Samtals hefur Moses einungis leikið fimm leiki í öllum keppnum með Chelsea í vetur.
Eftir að Maurizio Sarri tók við síðastliðið sumar og fór í 4-3-3 hefur Moses verið úti í kuldanum.
Samtals hefur Moses einungis leikið fimm leiki í öllum keppnum með Chelsea í vetur.
Fenerbahçe’ye hoş geldin @VictorMoses!
— Fenerbahçe SK (@Fenerbahce) January 25, 2019
👉https://t.co/vGN3ZEZ8gY pic.twitter.com/HlRrVO9Jf8
