Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   lau 25. janúar 2020 13:50
Ívan Guðjón Baldursson
Fótbolta.net mótið: Jose Sito með tvennu er ÍBV náði öðru sætinu
Jose Sito gerði tveggja ára samning við ÍBV.
Jose Sito gerði tveggja ára samning við ÍBV.
Mynd: ÍBV
HK 1 - 3 ÍBV
0-1 Jose Sito ('4)
0-2 Jose Sito ('31)
0-3 Víðir Þorvarðarson ('82)
1-3 Alexander Freyr Sindrason ('85)

ÍBV tryggði sér annað sæti riðils 1 í A-deild Fótbolta.net mótsins með góðum sigri gegn HK á Kópavogsvelli í dag.

Jose Sito er genginn aftur í raðir Eyjamanna og skoraði hann tvennu í fyrri hálfleik.

Víðir Þorvarðarson bætti þriðja marki Eyjamanna við á lokakaflanum og minnkaði Alexander Freyr Sindrason muninn en það dugði ekki til fyrir heimamenn.

Eyjamenn ljúka því riðlakeppninni með fjögur stig á meðan HK endar með þrjú stig.

Sigurinn þýðir að ÍBV mætir Stjörnunni í úrslitaleik um þriðja sæti mótsins.

Markaskorarar af urslit.net
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner