Fotbolti.net
25.01.20 - 17:08
Ívan Guðjón Baldursson

Spánn: Valencia sigraði Barcelona

Spánn: Valencia sigraði Barcelona
Canon

Mynd: Getty Images

Valencia 2 - 0 Barcelona
0-0 Maxi Gomez, misnotað víti ('12)
1-0 Jordi Alba ('48, sjálfsmark)
2-0 Maxi Gomez ('77)
Það tók ekki langan tíma fyrir Quique Setien að tapa sínum fyrsta leik við stjórnvölinn hjá Barcelona. Það tap kom í dag, á útivelli gegn Valencia.

Börsungar héldu boltanum vel innan liðsins en náðu ekki að skapa sér mikið. Heimamenn í Valencia vörðust vel og voru beittir sóknarlega.

Maxi Gomez var næstum búinn að koma Valencia yfir í fyrri hálfleik en Marc-Andre ter Stegen varði vítaspyrnu frá honum. Gerard Pique gerðist brotlegur innan teigs eftir misheppnaða tæklingu.

Heimamenn komust yfir í upphafi síðari hálfleiks þegar skot Maxi Gomez fór af Jordi Alba og í netið.

Börsungar reyndu að jafna en á 77. mínútu innsiglaði Gomez sigurinn með marki eftir skyndisókn.

Barca er á toppi spænsku deildarinnar með 43 stig eftir 21 umferð. Liðið getur misst toppsætið til Real Madrid á morgun.

Valencia er í fimmta sæti með 34 stig, einu stigi frá Meistaradeildarsæti.

Espanyol 1 - 1 Athletic Bilbao
0-1 Asier Villalibre ('12)
1-1 Raul de Tomas ('63)

Botnlið Espanyol fékk þá Athletic Bilbao í heimsókn fyrr í dag.

Gestirnir komust yfir eftir vel útfærða hornspyrnu í fyrri hálfleik en Raul de Tomas gerði jöfnunarmark Espanyol eftir leikhlé.

Þetta var fimmta jafntefli Bilbao í röð í deildinni og er liðið tveimur stigum frá Evrópusæti.

Espanyol reif sig af botninum en er þremur stigum frá öruggu sæti.
Spánn: Valencia sigraði Barcelona
Canon

Mynd: Getty Images

La Liga - karlar

#LiðLmunStig
1Barcelona11+3430
2Atletico Madrid11+1428
3Real Madrid11+1827
4Betis11+323
5Real Sociedad11019
6Sevilla12-218
7Athletic10+415
8Deportivo11+114
9Alaves12-213
10Villarreal11012
11Celta11012
12Vallecano10-512
13Getafe11-812
14Espanyol11-111
15Osasuna11-1111
16Racing Santander11-1411
17Elche11-410
18Levante11-510
19Valencia11-99
20Malaga11-135
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.