Hver tekur við af Klopp? - Dani Olmo orðaður við Man Utd - Greenwood í skiptum fyrir Gleison Bremer
banner
   mán 25. janúar 2021 14:10
Magnús Már Einarsson
Stuðningsmenn Chelsea svara - Er rétt ákvörðun að reka Lampard?
Frank Lampard.
Frank Lampard.
Mynd: Getty Images
Mynd: Getty Images
Mynd: Getty Images
Frank Lampard var í morgun rekinn frá Chelsea eftir eitt og hálft ár í starfi sem stjóri.

Fótbolti.net fékk nokkra stuðningsmenn Chelsea til að tjá sig um tíðindi dagsins.

Er rétt ákvörðun hjá Chelsea að reka Lampard?



Ágúst Reynir Þorsteinsson
Hann hefði átt að fá að klára sitt verk og sína hugmyndafræði sem hafði mikið með unglingastarfið að gera. Hann er nú þegar búinn að gera stórverk fyrir Chelsea með því að taka alla þessa ungu stráka inn og gefið þeim tækifæri og sumir þeirra eru nú þegar að verða stjörnuleikmenn, eitthvað sem enginn annar þjálfari hefði gert. Þó við hefðum ekki tekið titil þetta árið þá hefði samt verið svo spennandi tímar framundan og ekki gleyma því aðdáendur elska Lampard en það hefur sýnt sig að skipti máli. Mín skoðun er sú að Lampard taki við Chelsea aftur fyrr en síðar, nú þarf hann að fá eitthvað létt lið eins Rangers til að þroskast sem þjálfari.

Jóhann Már Helgason
Mér finnst það galin ákvörðun að reka Lampard á þessum tímapunkti. Vissulega hefur gengið ekki verið upp á marga fiska og staða liðsins í deildinni engan vegin ásættanleg. En þetta tímabil getur heldur ekki talist neitt sérstaklega eðlilegt þegar horft er til úrslita. Liverpool, Man City, Arsenal og Man Utd hafa öll tekið sínar niðursveiflur á þessu tímabili. Ég hafði ennþá trú á því að Lampard gæti komið til baka og tryggt Meistaradeildarsæti enda er deildin bara rétt hálfnuð. Svo má ekki horfa framhjá því að liðið fór örugglega áfram í Meistaradeildinni og er komið í 16-liða úrslit bikarkeppninnar – þannig staðan var ekki alslæm.
Lampard tók við liðinu í félagaskiptabanni og missti um leið einn besta leikmann í sögu félagins, Eden Hazard. Hann þurfti því að byggja upp nýtt lið þar sem þungamiðjan voru ungir og óreyndir leikmenn. Mason Mount, Reece James, Tammy Abraham, Billy Gilmour og Hudson-Odoi eru efnilegir leikmenn sem Lampard breytti í alvöru aðalliðsmenn. Segja má að Lampard sé fórnarlamp góðs árangurs á síðasta tímabili.

Það sem líklega fellir Lampard voru þessar væntingar sem komu með kaupunum á leikmönnum eins og Havertz, Werner og Ziyech. Hann hefur ekki náð því besta úr þessum köppum, sérstaklega Havertz og Werner. Það er ákaflega dapurt að þurfa horfa á eftir Super Frank en svona er nú þessi leikur miskunnarlaus.

Jóhann Laxdal
Mér finnst þetta ekki skemmtilegt, hefði haldið að Lampard fengi meiri tíma til að búa til meira veldi og gerir góða hluti með leikmannabanninu og kemur Chelsea í meistaradeildina. Hann fær svo að versla leikmenn og lítur það allt mjög vel út en svo tekur bara tíma að búa til liðið almennilega og hafa sumir leikmenn ekki hjálpað til þar eigandi svo mikið inni og þar finnst mér þetta ekki vera rétt ákvörðun að reka Lampard.

Steinar Ægisson
Það er erfitt að segja hvort að þessi ákvörðun sé rétt eða ekki. En það kemur augljóslega í ljós. Úrslitin og fótboltinn sem við höfum verið að spila síðustu tvo mánuði hefur verið skelfilegur og miðað við mannskap þá eigum við að vera í topp 4. Þetta sýnir líka hvað það er stutt á milli í þessu í fótbolta. Fyrir 2 mánuðum trúði ég því innilega að við gætum barist um titilinn og hafði engar áhyggjur af topp 4 en nokkur slæm úrslit og allt fer í apaskít. Þrátt fyrir þessi tíðindi þá breytist það ekki að Frank Lampard verður alltaf goðsögn á Brúnni. Það má líka bæta því við að hann kemur nokkrum ungum uppöldum leikmönnum í úrvalsdeildar klassa og það er meira en margir þjálfarar hafa gert hjá Chelsea.

Stefán Marteinn
Úr því sem komið var og þekkjandi hvernig Roman virkar þá hefur þetta kannski legið í loftinu, því miður. Áreiðanlegir miðlar hafa sumir hverjir talað um að þetta hafi hreinlega verið spurning um hvenær en ekki hvort þó er tímasetningin á þessu er samt mjög óvænt. Frank Lampard er og mun alltaf vera Chelsea goðsögn, um það er enginn að efast.
Blákaldur sannleikurinn er bara sá að Lampard er með verstu tölfræðina yfir stjóra Chelsea frá tíð Roman og Rússinn gaf honum eflaust meiri tíma en hann hefur nokkru sinni gefið einhverjum áður miðað við úrslit, þetta hefur bara ekki verið að virka, því miður. Það þurfti að bregðast við ef við ætlum að vera með í baráttunni um top 4 - það er núna eða aldrei! Eitthvað varð að breytast og Lampard hefur ekki verið að sýna fram á að vera með svörin. Virkilega sár viðskilnaður því maður þráði ekkert heitar en að þetta myndi ganga upp og Lampard yrði okkar Sir Alex Ferguson. Kannski eftir 10-15 ár?

Brynjar Jökull Guðmundsson
Ég er á báðum áttum með þetta, þar sem gengi liðsins hefur verið slakt í síðustu leikjum. En ég hefði viljað leyfa honum að klára tímabilið og taka stöðuna eftir það, kannski er ég bara svo sentimental, þar sem Lampard er í guðatölu og er legend hjá klúbbnum en nútíma fótbolti er grimmur og ekki tími fyrir tilfinningar þar, hvað þá hjá Roman.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner