Franski sóknarmaðurinn Anthony Martial er genginn til liðs við spænska félagið Sevilla á láni út þetta tímabil en þetta kemur fram í tilkynningu frá Manchester United.
Martial, sem er 26 ára gamall, spilaði aðeins ellefu leiki með United á þessari leiktíð og skoraði eitt mark. Hann lék samtals 367 mínútur í þessum ellefu leikjum og var vitaskuld ósáttur við stöðuna.
Ralf Rangnick, stjóri United, greindi frá því á dögunum að Martial hefði ekki viljað spila í 2-2 jafnteflinu gegn Aston Villa en franski framherjinn neitaði fyrir það og sagði það alls ekki rétt.
Hann spilaði í 1-0 sigri United á West Ham á dögunum og var hrósað af Rangnick en er nú farinn frá félaginu á láni til Sevilla.
Martial mun spila með Sevilla út þessa leiktíð en hann er samningsbundinn United til 2024.
🚨 OH YES! 𝐖𝐄𝐋𝐂𝐎𝐌𝐄 to #SevillaFC, @AnthonyMartial! 🇫🇷
— Sevilla FC (@SevillaFC_ENG) January 25, 2022
Athugasemdir